Ósiðlegt og ætti með réttu að vera ólöglegt

„Fram hefur komið að Össur ehf. hafi ákveðið að nýta …
„Fram hefur komið að Össur ehf. hafi ákveðið að nýta sér hlutabótaleiðina örskömmu eftir að fyrirtækið greiddi eigendum sínum 1,2 milljarða króna í arð. Slíkt athæfi er ósiðlegt og ætti með réttu að vera ólöglegt.“ Ljósmynd/Aðsend

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands áréttar að opinber stuðningur til fyrirtækja vegna áhrifa COVID-19 á ekki að vera til þess gerður að fyrirtæki sem ekki þurfa á honum að halda vaði í sameiginlega sjóði samfélagsins að vild.

„Fram hefur komið að Össur ehf. hafi ákveðið að nýta sér hlutabótaleiðina örskömmu eftir að fyrirtækið greiddi eigendum sínum 1,2 milljarða króna í arð. Slíkt athæfi er ósiðlegt og ætti með réttu að vera ólöglegt,“ segir í tilkynningu frá sambandinu.

Þar segir jafnframt að ASÍ hafi ítrekað kallað eftir því að stjórnvöld setji skýr skilyrði við opinberum stuðningi, og að slíkar kröfur séu í samræmi við ráðleggingar Alþjóðavinnumálstofnunarinnar, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og OECD.

„Meðal skilyrða sem ASÍ hefur kallað eftir er að fyrirtæki hafi nýtt sér eigin bjargir, þau undirgangist skilyrði um að greiða ekki út arð til tveggja ára eftir að þau njóta fyrirgreiðslu og að fyrirtækin eða eigendur þeirra séu ekki skráð í skattaskjólum. Stjórnvöld hafa brugðist þeirri skyldu sinni að tryggja hagsmuni almennings og komandi kynslóða. Nú er mál að linni.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert