Nota faraldur til að koma höggi á fjölmiðla

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, ávarpaði tvo ráðherrafundi um mannréttindamiðuð málefni í dag, annars vegar fund á vegum ríkjabandalags um fjölmiðlafrelsi og hins vegar fund um trúfrelsi.

Fjölmiðlafrelsisbandalagið (e. Media Freedom Coalition) var myndað á síðasta ári í framhaldi af alþjóðlegri ráðstefnu um fjölmiðlafrelsi sem var haldin í London. Í ávarpi á fjarfundi þess í dag lagði Guðlaugur Þór áherslu á öryggi fjölmiðlafólks og lýsti áhyggjum sínum af árásum á það um allan heim, sem og tilraunum til að kæfa lýðræðislega umræðu með öðrum hætti. Nefndi hann sérstaklega áhrif heimsfaraldursins á málefnið, að því er kemur fram í tilkynningu.  

„Það eru því miður merki um að sumar ríkisstjórnir hafi notað heimsfaraldurinn til að koma höggi á fjölmiðla, borgaralegt samfélag, opna umræðu, og þjarma að frelsi og lýðræðislegum gildum. Við verðum að spyrna gegn þessari þróun hvarvetna, mæta þeim sem ganga fram með slíkum hætti og finna nýjar leiðir til mæta áskorunum sem þessu fylgja,“ sagði Guðlaugur Þór í ávarpinu, samkvæmt tilkynningunni.

Ísland er eitt 37 ríkja sem gerst hafa aðilar að bandalaginu. Markmið þess er að efla aðgerðir til að sporna við auknum árásum á fjölmiðlafólk um allan heim, varpa ljósi á mál sem bregðast verður við og styðja ríki sem vilja stíga skref í átt að auknu fjölmiðlafrelsi. Þetta var fyrsti formlegi ráðherrafundur bandalagsins en Kanada og Botsvana höfðu veg og vanda af skipulagningunni.

Hafna skuli ofbeldi í nafni trúarbragða

Í dag tók Guðlaugur Þór einnig þátt í ráðherrafundi um trú- og lífsskoðanafrelsi. Markmiðið var að gefa ráðherrum tækifæri til að eiga samtal um þau málefni sem eru mikilvægust og efst á baugi í tengslum við trúar- og lífsskoðanafrelsi á heimsvísu. Pólverjar skipulögðu fundinn.

Í ávarpi sem Guðlaugur Þór flutti á fundinum lagði hann áherslu á að trúfrelsi og tjáningarfrelsi væru grundvallarmannréttindi sem standa þyrfti vörð um og að hafna bæri ofbeldi sem framið væri í nafni trúarbragða. Benti hann á að kristnu fólki væri síst hlíft við ofsóknum á grundvelli lífsskoðana sinna, líkt og nýlegar árásir í Evrópu bæru vott um. Ljóst væri að sum stjórnvöld skákuðu í skjóli Covid-19 til að skerða réttindi borgara sinna, en mikilvægt væri að trúfrelsi, líkt og önnur mannréttindi, væri virt þrátt fyrir neyðarviðbrögð vegna heimsfaraldursins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert