Mikill meirihluti skipaði Þórunni í fyrsta sætið

Þórunn Sveinbjarnardóttir er formaður BHM en hún var þingmaður 1999-2011 …
Þórunn Sveinbjarnardóttir er formaður BHM en hún var þingmaður 1999-2011 og umhverfisráðherra 2007–2009. Mynd/mbl.is

Mikill meirihluti kjördæmisráðs Samfylkingarinnar samþykkti framboðslista flokksins í Suðvesturkjördæmi fyrr í kvöld. Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, mun leiða listann og þingmaðurinn Guðmundur Andri Thorsson vermir annað sætið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.

Í þriðja sæti er Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, listfræðingur og baráttukona fyrir réttindum fatlaðra, og fjórða sætið skipar Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi.

„Listinn er skipaður 26 kraftmiklum frambjóðendum, með margs konar reynslu og þekkingu, sem allir eiga það sameiginlegt að vilja vinna að framgangi hugsjóna og málefna Samfylkingarinnar - jafnaðarmannaflokks Íslands og berjast af fullu afli fyrir hagsmunum íbúa kjördæmisins,“ segir í tilkynningunni.

„Ég vil þakka félögum mínum í Suðvesturkjördæmi traustið sem þau sýna mér með því að velja mig til að leiða framboðslista Samfylkingarinnar til Alþingis. Hér er saman kominn mjög öflugur hópur frambjóðenda sem á brýnt erindi við kjósendur í Kraganum,“ er haft eftir Þórunni Sveinbjarnardóttur.

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi:

1. Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM.

2. Guðmundur Andri Thorsson, alþingismaður og rithöfundur.

3. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, baráttukona fyrir réttindum fatlaðs fólks, starfsmaður Þroskahjálpar og listfræðingur.

4. Guðmundur Ari Sigurjónsson, tómstunda- og félagsmálafræðingur og bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi.

5. Sólveig Skaftadóttir, alþjóðafræðingur og starfsmaður þingflokks Samfylkingarinnar.

6. Óskar Steinn Ómarsson, deildarstjóri á leikskóla.

7. Donata H. Bukowska, kennsluráðgjafi í málefnum nemenda með íslensku sem annað mál í Kópavogi.

8. Árni Rúnar Þorvaldsson, grunnskólakennari.

9. Gerður Pálsdóttir, þroskaþjálfi.

10. Arnar Ingi Ingason, tónlistarmaður.

11. Sigurþóra Bergsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins headspace.

12. Sigurjón Gunnarsson, húsasmíðameistari.

13. Ingibjörg Iða Auðunardóttir, íslenskunemi og forseti Ungra jafnaðarmanna í Garðabæ.

14. Gylfi Ingvarsson, vélvirki og eldri borgari.

15. Branddís Ásrún Snæfríðardóttir, meistaranemi í lögfræði.

16. Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri.

17. Kristín Sævarsdóttir, vörustjóri.

18. Kolbeinn A. Dalrymple, fjölmiðlamaður.

19. Hildur Rós Guðbjargardóttir, kennaranemi og starfsmaður Hrafnistu.

20. Hafsteinn Karlsson, skólastjóri.

21. Margrét Tryggvadóttir, rithöfundur.

22. Magnús Norðdahl, lögfræðingur ASÍ og fyrrverandi alþingismaður.

23. Dóra Hansen, innanhússarkitekt og kennari.

24. Jónas Sigurðsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ.

25. Jóna Dóra Karlsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði.

26. Rannveig Guðmundsdóttir, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert