Tveir sakfelldir en einn sýknaður í innherjasvikamáli

Innherjasvikamálið í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir rúmum tveimur árum síðan.
Innherjasvikamálið í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir rúmum tveimur árum síðan. mbl.is/Eggert

Landsréttur hefur sýknað Kjartan Berg Jónsson en sakfellt þá Kjartan Jónsson og Kristján Georg Jósteinsson en þeir voru allir sakfelldir í héraðsdómi í innherjasvikamáli hjá Icelandair.

Kjartan Berg Jónsson hafði hlotið fjögurra mánaða skilorðsbundinn dóm í héraðsdómi. Hann þarf þó að sæta upptöku á rúmum 20 milljónum króna.

Dómurinn yfir Kjartani Jónssyni var þyngdur úr einu og hálfu ári í tvö ár. Hann þarf að sæta upptöku á þremur milljónum króna sem voru haldlagðar við húsleit á heimili hans.

Dómurinn yfir Kristjáni var sá sami og í héraðsdómi, eða þrjú ár og sex mánuðir. Félag hans Fastrek þarf að sæta upptöku á rúmum 38 milljónum króna.

Innherjasvikamálið í Héraðsdómi Reykjavíkur
Innherjasvikamálið í Héraðsdómi Reykjavíkur mbl.is/Eggert

Í málinu voru Kjartan Jónsson og Kristján Georg ákærðir fyrir innherjasvik sem fóru þannig fram að sá síðarnefndi keypti og nýtti, í gegnum félag sitt sem nú heitir Fastrek ehf. afleiður og sölurétt samkvæmt valréttarsamningum sem byggðust á verðþróun hlutabréfa í Icelandair Group hf., þrátt fyrir að búa yfir innherjaupplýsingum sem sá fyrrnefndi lét Kristjáni Georg í té.

Kjartan Berg Jónsson var einnig ákærður fyrir hlutdeild í innherjasvikum fyrir að hafa keypt samskonar sölurétt samkvæmt valréttarsamningi á grundvelli ráðgjafar eða hvatningar af hálfu Kristjáns Georgs.

Sérstaklega alvarleg brot

Fram kemur í dóminum að Kjartan Jónsson hefði í starfi sínu sem forstöðumaður leiðakerfisstjórnunar Icelandair ehf. verið skilgreindur í hópi lykilstarfsmanna og skráður fruminnherji í móðurfélaginu, Icelandair Group hf., og hefði að jafnaði haft aðgang að upplýsingum sem gátu haft marktæk áhrif á markaðsvirði félagsins.

Samskipti hans og Kristjáns Georgs báru með sér að sá síðarnefndi hefði átt viðskipti með umræddar afleiður og sölurétti, á grundvelli innherjaupplýsinga frá Kjartani Jónssyni, sem hefði tekið þátt í skiptingu áhættu og hagnaðar.Voru þeir því sakfelldir fyrir framangreind brot.

Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot þeirra voru sérstaklega alvarleg og ásetningur þeirra einbeittur.

Landsréttur taldi að ekki hefðu verið færðar sönnur fyrir því að Kjartan Berg Jónsson hefði vitað eða mátt vita að Kristján Georg hefði búið yfir innherjaupplýsingum um Icelandair Group hf. þegar hann ráðlagði eða hvatti hann til viðskipta með bréf félagsins og var Kjartan Berg því sýknaður af hlutdeild í innherjasvikabroti Kristjáns Georgs. Hins vegar var ávinningur Kjartans Berg af broti Kristjáns Georgs gerður upptækur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert