Sátu á hrauninu og grilluðu sykurpúða

Frönsku ferðamennirnir sallarólegir ofan á hrauninu.
Frönsku ferðamennirnir sallarólegir ofan á hrauninu. mbl.is/GRE

Tveir franskir ferðamenn virtu að vettugi viðvaranir um að ekki megi stíga á hraunið í Geldingadölum og grilluðu þar sykurpúða í gærkvöldi.

Voru þeir hinir rólegustu þegar meðfylgjandi ljósmyndir náðust af þeim og sátu ofan á hrauninu í mestu makindum.

Lögreglan og björgunarsveitir hafa ítrekað varað við því að ferðamenn fari upp á hraunið, enda lífshættulegt.

mbl.is/GRE

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ferðamenn ganga á hrauninu. Skemmst er að minnast þess þegar ungt par sást þar ganga með ungabarn á bakinu í júlí síðastliðnum.

mbl.is/GRE
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert