Smit á heimili Katrínar

Smit er komið upp á heimili Katrínar.
Smit er komið upp á heimili Katrínar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Smit er komið upp á heimili Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra, að því er hún greinir frá á facebooksíðu sinni. Sonur hennar greindist jákvæður í heimaprófi og er hundslappur að sögn Katrínar.

Katrín grínast með að fjölskyldan hennar sé alltaf síðust í öllu en það megi til sanns vegar færa þar sem tekið hafi kórónuveiruna tvö ár að komast inn fyrir dyr forsætisráðherrans. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert