„Ætlið þið að borga okkur út?“

Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður, tók til máls sem íbúi …
Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður, tók til máls sem íbúi á fundi Grindvíkinga í Laugardalshöll. mbl.is/Arnþór

Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður og íbúi í Grindavík til fjörutíu ára, hlaut miklar undirtektir þegar hann tók til máls úti í sal á íbúafundi Grindavíkinga nú í kvöld.

Sagði hann kostnaðinn við að borga Grindvíkinga út vera smáaura í samanburði við þann gjaldeyri sem bæjarfélagið hafi skilað til landsins. 

Á vefmyndavélum er erfitt að gera sér grein fyrir hversu …
Á vefmyndavélum er erfitt að gera sér grein fyrir hversu þykk hraunbreiðan við Grindavík er. Þegar á Grindavíkurveg er komið sést betur hversu mikil þykktin er. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Svekktur“ yfir málflutningi Þórdísar

„Ég verð stundum svo svekktur þegar ég pæli í því, eins og Þórdís Kolbrún sagði áðan, að það kosti um 115 milljarða að borga okkur út. 115 milljarða,“ sagði Páll Valur.

„Gerið þið ykkur grein fyrir því hvað Grindavík hefur skaffað miklum gjaldeyri inn í þetta land?“

115 milljarðar

Hann hélt áfram:

„Gerið þið ykkur grein fyrir því hvað útgerðarfélögin okkar, stórglæsilegu útgerðarfélögin okkar, útgerðarmennirnir – og hér sitja gamlir skipstjórar, sjómenn og við fiskvinnslufólk sem unnu baki brotnu við að byggja upp þetta bæjarfélag. Hvað, eru þetta 50-60 milljarðar á ári? Og svo Bláa lónið líka?“

Hann ávarpaði fulltrúa stjórnvalda á fundinum, en fjöldi ráðherra kom til fundarins við íbúa:

„Og þið eruð að velta fyrir ykkur 115 milljörðum? Það eru smáaurar í samanburði við það sem Grindavík hefur fært íslensku þjóðarbúi,“ sagði hann og hlaut standandi lófatak eins og Grindvíkingurinn Bryndís Guðlaugsdóttir, sem áður hafði tekið til máls.

Tjónið er nú þegar orðið gríðarlegt í Grindavíkurbæ.
Tjónið er nú þegar orðið gríðarlegt í Grindavíkurbæ. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Húsið verðlaust í einhverjum sigdal

„Fólk vill fá svör við þessari spurningu einni - ætlið þið að borga okkur út?“

Þá benti hann á að fólk hefur búið þarna í tugi ára og hann meðal annars í fjörutíu ár:

„Ég er búinn að berjast eins og skepna við að koma mér uppi húsi og nú er það bara í einhverjum sigdal – verðlaust.“

Ari Guðmunds­son, verk­efna­stjóri vegna bygg­ingu varn­arg­arða og sviðsstjóri hjá Verkís, …
Ari Guðmunds­son, verk­efna­stjóri vegna bygg­ingu varn­arg­arða og sviðsstjóri hjá Verkís, Hulda Ragn­heiður Árna­dótt­ir, forstjóri Nátt­úru­ham­fara­trygg­ing­ar Íslands, Sig­urður Ingi Jó­hanns­son innviðaráðherra og Úlfar Lúðvíks­son, lög­reglu­stjóri á Suður­nesj­um. Þá glittir í Krist­ínu Jóns­dótt­ur, deildar­stjóra á Veður­stofu Íslands. mbl.is/Arnþór

Á ekki að vefjast fyrir ríkisstjórn Íslands

Að lokum ítrekaði hann:

„Það er bara þetta sem ég vil benda á og mér finnst að hafi gleymst þegar við tölum um Grindavík – hvað við erum mikil gullkista fyrir íslenskt samfélag. Við eigum einhverja flottustu útgerðarmenn landsins og einhverja flottustu sjómenn landsins sem hafa byggt upp og landað í Grindavík.“

Þá benti hann að lokum á að hvergi annars staðar væri meira af þorski landað en í Grindavík.

„Það á ekki að vefjast neitt fyrir ríkisstjórn Íslands að borga okkur öll út, ef það er það sem við viljum, með forgangsrétti aftur ef við viljum koma inn.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert