Segja framboð Baldurs mun faglegra en Höllu

Svo virðist sem skipulagið á forsetaframboði Baldurs Þórhallssonar sé mun faglegar unnið en í tilfelli Höllu Tómasdóttur.

Baldur Þórhallsson hefur lýst yfir framboði til embættis forseta Íslands.
Baldur Þórhallsson hefur lýst yfir framboði til embættis forseta Íslands. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þetta er mat þeirra Nadine Guðrúnar Yaghi og Þórhildar Þorkelsdóttur, en þær eru gestir í Spursmálum.

Þær benda á að framboð Baldurs hafi greinilega verið mjög vel skipulagt og þegar það var tilkynnt hafi hlutirnir gerst hratt. Auglýsingar hafi birst um leið á strætóskýlum og víðar.

Halla Tómasdóttir lýsti yfir framboði til forseta Íslands, öðru sinni, …
Halla Tómasdóttir lýsti yfir framboði til forseta Íslands, öðru sinni, síðastliðna helgi. mbl.is/Óttar

Í viðtalinu upplýsa þær reyndar líka, og í léttum tóni, að þær séu hrifnar af framboði Ísdrottningarinnar svokölluðu, Ásdísar Ránar. Tók það þáttastjórnanda reyndar nokkra stund að átta sig á til hvaða frambjóðanda þær voru að vísa þegar viðurnefnið bar á góma.

Viðtalið við þær Þórhildir og Nadine Guðrúnu má sjá og heyra í heild sinni hér:

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert