Fréttaskýring: Samfylking kemur á óvart – Framsókn í sögulegu lágmarki

Forustumenn stjórnmálaflokkanna fylgjast með lestri talna í Útvarpshúsinu í kvöld,

Forustumenn stjórnmálaflokkanna fylgjast með lestri talna í Útvarpshúsinu í kvöld, mbl.is/ÞÖK

Eftir Ólaf Þ. Stephensen olafur@mbl.is
Útkoma Samfylkingarinnar í kosningunum kemur mest á óvart miðað við fyrstu tölur í kvöld. Flokkurinn virðist lítið undir kjörfylginu fyrir fjórum árum og vel yfir því fylgi, sem flokkurinn hafði í skoðanakönnunum fyrir fáeinum vikum. Barátta Samfylkingarinnar á lokaspretti kosningabaráttunnar virðist hafa skilað árangri.

Ekki þarf að fjölyrða um það að ríkisstjórnarmeirihlutinn er fallin samkvæmt fyrstu tölum. Framsóknarflokkurinn fær aðeins sjö þingmenn – missir fimm - og fær minna fylgi en nokkru sinni áður í sögunni. Nokkrir af helztu leiðtogum flokksins á suðvesturhorni landsins virðast fallnir af þingi eða í mikilli fallhættu.

Sjálfstæðisflokkur bætir við sig
Sjálfstæðisflokkurinn bætir lítillega við sig, sem teljast má gott eftir 16 ára stjórnarsetu. Fylgið er þó tæplega nóg til að sjálfstæðismenn séu verulega ánægðir með úrslitin, sérstaklega í ljósi skoðanakannana á lokaspretti kosningabaráttunnar. Flokkurinn er undir meðalfylgi sínu í sögunni, sem er tæplega 39% atkvæða.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð er sigurvegari kosninganna; bætir við sig um 5 prósentustiga fylgi og fjórum þingmönnum. Samt er fylgi VG aðeins rúmur helmingur af því, sem kannanir spáðu flokknum fyrir fáeinum vikum.

Frjálslyndir halda sínu og virðast ætla að verða annar flokkurinn utan gamla fjórflokksins, auk Kvennalistans, sem nær því að fá menn á þing þrennar kosningar í röð. Klofningur flokksins skömmu fyrir kosningar hefur ekki skaðað hann jafnmikið og margir væntu og lítið fylgi hefur fylgt Margréti Sverrisdóttur og fylgismönnum hennar yfir í Íslandshreyfinguna.

Vinstristjórn í spilunum
Vinstristjórn er augljóslega í spilunum, gangi þau úrslit eftir sem lítur út fyrir eftir fyrstu tölur. Kaffibandalagið hefur tveggja þingsæta meirihluta á þingi.

Vafalaust hefjast þreifingar á milli stjórnmálaleiðtoga strax í nótt. Frá baklandi þingflokka VG og Samfylkingarinnar verður þrýstingur á að hefja viðræður um vinstri stjórn með þátttöku Frjálslyndra eða þá Framsóknarflokksins áður en aðrir kostir verða reyndir.

Hins vegar á Sjálfstæðisflokkurinn auðvitað tvo kosti á myndun tveggja flokka ríkisstjórnar og getur boðið upp á skýrari kosti fyrir nýjan samstarfsflokk en blasa við í fljótu bragði í þriggja flokka viðræðum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is