Tillaga um prófkjör í Reykjavík

Valhöll, hús Sjálfstæðisflokksins.
Valhöll, hús Sjálfstæðisflokksins.

Sjálfstæðismenn hafa boðað til funda víða um land á laugardaginn kemur til að ræða undirbúning Alþingiskosninga. Þannig hafa kjördæmisráð flokksins í Suður-, Norðvestur- og Norðausturkjördæmi öll auglýst fundi. Einnig hefur Vörður - fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík boðað til fundar á laugardag.

Stjórn Varðar leggur til að fram fari prófkjör í Reykjavík og verða greidd atkvæði um hana. Á fundum kjördæmisráðanna verður tilhögun vals á framboðslista ákveðin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert