Lúðvík gefur ekki kost á sér

Lúðvík Bergvinsson stækka

Lúðvík Bergvinsson mbl.is

Lúðvík Bergvinsson formaður þingflokks Samfylkingarinnar hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér við næstu alþingiskosningar. Hann hefur setið á þingi frá 1995.

Lúðvík segir í tilkynningu: „ Ég ákvað fyrir nokkru að leita ekki eftir endurkjöri í komandi alþingiskosningum, en á Alþingi hef ég átt sæti frá árinu 1995. Fjórtán ár er langur tími á sama vinnustað.

Þau miklu straumhvörf sem orðið hafa í íslensku samfélagi undanfarna mánuði, gera þá sjálfsögðu og eðlilegu kröfu að breytingar verði á skipan Alþingis, enda er þáttur stjórnvalda mikill þegar kemur að ábyrgð á því að fjármálakerfi landsins hrundi.

Ég þakka öllum fyrir þann stuðning og traust sem ég hef notið þann tíma sem ég hef átt sæti á Alþingi. Það eru mikil forréttindi og lærdómur hverjum þeim sem fær að starfa á Alþingi í umboði almennings. Fyrir það vil ég sérstaklega þakka.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is