Dólgsleg árás, segir Björn Bjarnason

Björn Bjarnason fyrrverandi alþingismaður. stækka

Björn Bjarnason fyrrverandi alþingismaður. mbl.is/Brynjar Gauti

Björn Bjarnason, fyrrverandi alþingismaður, segir að sendiherra ESB gagnvart Íslandi hafi ráðist dólgslega á Sjálfstæðisflokkinn af því alkunna yfirlæti, sem sendimenn Evrópusambandsins telja sér sæma að sýna stjórnmálaflokkum og heilum þjóðum, ef menn beygja sig ekki þegjandi undir Brusselvaldið.

Percy Westerlund, sendiherra Evrópusambandsins gagnvart Noregi og Íslandi, sagði í viðtali við Ríkisútvarpið að það sé mikill misskilningur hjá Sjálfstæðisflokknum á Íslandi að halda að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) geti komið því til leiðar eða haft milligöngu um að Íslendingar geti tekið upp evru. Einnig var fjallað um málið í fréttum Stöðvar 2.

Björn segir á heimasíðu sinni:

„Ástæða er til að vekja athygli á hinum makalausu viðbrögðum sendiherra Evrópusambandsins  (ESB) gagnvart Íslandi við því stefnumiði Sjálfstæðisflokksins að leita samstarfs við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um gjaldmiðilsskipti með augastað á evru. Fulltrúi ASG svaraði spurningu Stöðvar 2 um þessi mál á diplómatískan hátt og sagði, að málið yrði kannað, þegar það yrði tímabært. Percy Westerlund, sendiherra ESB, réðst hins vegar dólgslega á Sjálfstæðisflokkinn og af því alkunna yfirlæti, sem sendimenn Evrópusambandsins telja sér sæma að sýna stjórnmálaflokkum og heilum þjóðum, ef menn beygja sig ekki þegjandi undir Brusselvaldið.“

Björn segir Íslendinga hafa mætt þessari framkomu af hálfu embættismanna ESB strax eftir bankahrunið, þegar þeir gerðu Ísland að blóraböggli, vegna þess að tilskipun ESB um fjármálafyrirtæki dugði ekki til að tryggja öryggi í rekstri þessara fyrirtækja við lausafjárþurrð á heimsvísu. „Þá ákváðu þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Össur Skarphéðinsson, að ekki skyldi haldið fram lagalegum rétti Íslands gagnvart ESB heldur skoða málið frá pólitísku sjónarhorni. Nú er borin von, að Össur mótmæli þessari íhlutun sendiherra ESB í íslensk stjórnmál og innanlandsmál. Öll afskiptasemi Brusselvaldsins af íslenskum stjórnmálum er Samfylkingunni þóknanleg - það er hið pólitíska sjónarhorn Samfylkingar gagnvart Brusselvaldinu,“ segir Björn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Laugardaginn 18. desember

Fimmtudaginn 2. desember

Miðvikudaginn 1. desember

Þriðjudaginn 30. nóvember

Fimmtudaginn 25. nóvember

Mánudaginn 22. nóvember

Laugardaginn 20. nóvember

Miðvikudaginn 17. nóvember

Föstudaginn 12. nóvember

Miðvikudaginn 10. nóvember

Miðvikudaginn 3. nóvember

Þriðjudaginn 2. nóvember

Mánudaginn 25. október

Fimmtudaginn 21. október

Þriðjudaginn 19. október

Mánudaginn 18. október

Sunnudaginn 17. október

Laugardaginn 16. október

Föstudaginn 15. október

Fimmtudaginn 14. október

Mánudaginn 11. október

Laugardaginn 9. október

Föstudaginn 8. október

Fimmtudaginn 7. október

Föstudaginn 1. október

Fimmtudaginn 23. september

Miðvikudaginn 22. september

Þriðjudaginn 21. september

Miðvikudaginn 8. september

Miðvikudaginn 1. september

Mánudaginn 30. ágúst

Miðvikudaginn 25. ágúst

Þriðjudaginn 24. ágúst


finnur.is