Skora á Sigurð á leiða Á-lista áfram

Álftanes.
Álftanes.

Á fundi bæjarmálaráðs Álftaneshreyfingarinnar í gærkvöldi var samþykkt að hefja þegar undirbúning að framboði Á-lista Álftaneshreyfingarinnar.

Jafnframt var skorað á núverandi bæjarfulltrúa og varabæjarfulltrúa, Sigurð Magnússon, Kristínu Fjólu Bergþórsdóttur og Kristinn Guðmundsson að vera áfram í forystusveit Álftaneshreyfingarinnar og taka sæti á listanum hennar í komandi kosningum.

Þá var á fundinum samþykkt að skora á íbúa á Álftanesi, sem vilji koma til starfa fyrir Á-listann eða hafa ábendingar um fólk á listann eða til annarra trúnaðarstarfa að senda inn ábendingar og tillögur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert