Mynda meirihluta í Kópavogi á næstu dögum

Fulltrúar fjögurra flokka hófu vinnu á sunnudag við myndun nýs …
Fulltrúar fjögurra flokka hófu vinnu á sunnudag við myndun nýs meirihluta í Kópavogi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Meirihlutaviðræður í Kópavog ganga vel og er vonast til að niðurstaða fáist á næstu dögum, segir Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingar. „Það var fundað stíft í gær og verður fundað stíft í dag,“ segir hún.

Aðspurð segir hún engan málefnaágreining vera á milli flokkanna, Samfylkingu, VG, Lista Kópavogsbúa og Næst besta flokksins, sem hófu meirihlutaviðræður eftir að niðurstöður kosninga í Kópavogi urður ljósar. „Það liggur fyrir að málefnalega hugsum við svipað.“

Svo virtist sem ágreiningur hefði komið upp í fyrradag um hver skyldi verða bæjarstjóri, en Listi Kópavogsbúa vill að ráðinn verði ópólitískur bæjarstjóri. Eftir að greint var um á málið, m.a. í fjölmiðlum, sendu flokkarnir fjórir þó frá sér tilkynningu þar sem segir að þeir standi sameiginlega að meirihlutaviðræðum.

Aðspurð hvort búið sé að ganga frá málefni bæjarstjóra, segir Guðríður: „Það er verið að taka margar ákvarðanir í einu og þetta hangir allt saman. [...] Við ætlum að reyna að klára þetta og kannski upplýsa sem minnst um stöðuna fyrr en þetta liggur allt fyrir.“

Guðríður Arnardóttir.
Guðríður Arnardóttir.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert