„Þar sem er vilji er vegur“

Andra Jóhanna Ólafsdóttir í Norræna húsinu í dag.
Andra Jóhanna Ólafsdóttir í Norræna húsinu í dag. Morgunblaðið/SigurgeirS

„Þar sem er vilji er vegur,“ sagði Andrea Jóhanna Ólafsdóttir þegar hún ávarpaði stuðningsmenn sína í Norræna húsinu í dag. Andrea fór yfir ástæður þess að hún gefur kost á sér til embættis forseta auk þess sem framboð hennar stendur fyrir. Hún sagðist sem forseti vilja vera verkfæri þjóðarinnar.

Andrea sagði íslensku þjóðina komna að tímamótum, hún standi á krossgötum og þurfi að gera upp við sig hvort hún vilji sömu gömlu hlutina eða hvort hún vilji hefja vegferð í átt að betra og örugga lýðræði.

Hún sagði Alþingi ekki geta leyst stór mál sem gangi þvert á flokkslínur og þurfi því aðstoð til. Ein leið til þess er að láta verkin tala í þágu meirihluta þjóðarinnar. Fólkið verði að koma þinginu til aðstoðar með beinni aðkomu. „Ég tel að það geti gerst í gegnum forsetaembættið, með traustum forseta sem er tilbúinn að vera lýðræðislegt verkfæri meirihlutans.“

Þá benti Andrea á að eins mál standa í dag og íslenska stjórnarskráin skrifuð hafi þjóðin enga möguleika á því að taka málin í sínar hendur. Hún vilji því vera milligönguliður fyrir þjóðina. „Þjóðin nýti tækifærið og láti lýðræðisumbætur ganga í gegnum forsetaembættið.“

Ætlar aðeins að þiggja lágmarkslaun

Andrea sagðist reiðubúin til að taka að sér þetta hlutverk, hún hafi skýra sýn og einbeittan vilja til að hlúa að lýðræðinu. Hún hafi djúpstæðinga virðingu fyrir landi og þjóð og ábyrgðartilfinningu, það sé skylda hennar að stíga þetta skref og koma til móts við þjóðina.

Þrennt nefndi Andrea sem verði hennar helstu baráttumál nái hún kjöri, þ.e. lánamál heimilanna, lögfestingu lágmarkslauna og lýðræðisumbætur. Hvað lánamálin áhrærir sagði Andrea að leiðrétta þyrfti skuldir heimila og afnema verðtryggingu. Á slíkri endurreisn þurfi þjóðin að halda. Með því að lögfesta lágmarkslaun sé fólki sýnd virðing og nauðsynlegt sé að fá þjóðaratkvæðagreiðslur í lög sem öryggisventil fyrir þjóðina.

Andrea sagðist sannfærð um að þessi mikilvægu mál myndu ná mjög hratt fram að ganga ef þingmenn væru á lágmarkslaunum á meðan þeir ynnu að þeim. Af þessum sökum ætlar hún að aðeins að þiggja lágmarkslaun á þar til fyrstu tveimur markmiðunum er náð. Afganginn ætlar hún að gefa til góðra mála.

Eftir að markmiðunum er náð hyggst hún einungis þiggja helming launanna og gefa hinn til góðra málefna í gegnum sérstakan forsetasjóð.

Þjóðfundir og skoðanakannanir

Þá sagði Andrea að hennar fyrsta verk í embætti verði að kalla til þjóðfundar til að eiga samvinnu um það hvernig þjóðin sér fyrir sér að nota embættið. Hún hyggst einnig ræða við fólk hvaðanæva á landinu og fylgja því eftir með skoðanakönnun. Þannig geti hún tryggt að hún starfi samkvæmt því sem þjóðin vill.

Hún hvatti þá stuðningsmenn sína og aðra að taka skrefið með henni, framfaraskref í át að traustara og öruggara lýðræði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert