„Viljum vera leiðandi flokkur á Alþingi“

„Það væri mjög ánægjuleg niðurstaða fyrir okkur að endurheimta þá stöðu, að vera leiðandi flokkur á þinginu. Það er það sem við erum að vonast eftir í þessum kosningum,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, spurður um fyrstu tölur.

„Þetta er í þokkalegu samræmi við þessar síðustu kannanir. Auðvitað vonast ég til þess að við bætum við okkur,“ segir Bjarni og bætir við að fátt óvænt hafi komið í ljóst.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert