539 greiddu atkvæði utankjörfundar

Frá atkvæðagreiðslu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í Valhöll í …
Frá atkvæðagreiðslu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í Valhöll í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fer fram í dag og á morgun þar sem kosið verður á fimm stöðum í borginni.

Utankjörfundi lauk klukkan fjögur í gær og voru þar greidd 539 atkvæði. Um tuttugu þúsund manns eru á kjörskrá.

Margir sjálfboðaliðar verða við talningar sem hefjast um leið og kjörstöðum lokar á morgun klukkan 18.00 og búast má við fyrstu tölum um klukkustund síðar, samkvæmt Unni Brá Konráðsdóttur, formanns kjörstjórnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert