GTA IV selst vonum framar

STAFF

Ef eitthvað er að marka The New York Times hefur Grand Theft Auto IV selst enn betur en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Samkvæmt heimildum New York Times hafa nú þegar selst rúmlega 6 milljónir eintaka af leiknum og þar af 3,6 milljónir á fyrsta degi.

Áætlaður ágóði af allri þessari leikjasölu er um 500 milljónir dollara og það er bara fyrir fyrstu vikuna. Fyrirfram var búist við því að um fimm milljónir eintaka myndu seljast á fyrstu tveimur vikunum og reiknað var með að um 9 milljónir eintaka af leiknum væru seld fyrir árslok. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert