Tæpur helmingur Skota vill ekki nýtt þjóðaratkvæði um veru Skotlands í breska konungdæminu komi til þess að samþykkt verði í þjóðaratkvæðagreiðslu í sumar að Bretland segi skilið við Evrópusambandið ef marka má niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar fyrirtækisins ICM.
Fram kemur á fréttavef dagblaðsins The Scotsman að 48% séu þessarar skoðunar en nokkru færri, eða 44%, vilji þjóðaratkvæði um sjálfstæði frá Bretlandi við þær aðstæður. Því var hafnað að Skotland yrði sjálfstætt í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fór 2013.
Miklar umræður hafa verið um það í Bretlandi að Skotar gætu sagt skilið við breska konungdæmið ef niðurstaða þjóðaratkvæðisins í sumar verður á þá leið að Bretland yfirgefi Evrópusambandið en meirihluti Skota er hlynntur áframhaldandi veru í sambandinu.