Hvers vegna lést Angelica Heggelund 13 ára í sumarbústað í Valdres á nýársdag 2015? Réttarhöld í málinu hefjast í dag og hafa 74 vitni verið kölluð til en móðirin er ákærð fyrir alvarlega vanrækslu. Dánarorsökin er talin vera vannæring. Líkt og ítarlega hefur verið fjallað um á mbl.is lést stúlkan í sumarbústað í Beitostøle á nýársdag 2015.
Móðir stúlkunnar óskaði eftir aðstoð og kom sjúkralið á vettvang með þyrlu. Stúlkan var úrskurðuð látin en krufning leiddi í ljós að dánarorsök hennar var vannæring. Stúlkan hafði glímt við átröskun um tíma og verið í meðferð vegna þess. Þeirri meðferð hafði hins vegar verið hætt. Gríðarlegur áhugi er hjá fjölmiðlum á málinu og má búast við því að það verði þröngt á þingi í Héraðsdómi Gjøvik í dag.
Alls eru vitnin 70 auk fjögurra sérfræðinga. Reiknað er með að réttarhöldin standi yfir í fjórar vikur, samkvæmt frétt Aftenposten.
Saksóknari í málinu, Arne Ingvald Dymbe, telur að móðir stúlkunnar hafi gert sér fulla grein fyrir alvöru málsins og að hún hafi vísvitandi haldið henni fjarri heilbrigðisþjónustu og komið í veg fyrir að Angelica Heggelund fengi lífsnauðsynlega aðstoð.
Móðirin, Camilla Lem Heggelund, neitar sök að sögn verjanda hennar, Aasmund Sandland, og segir Sandland að málið hafi aldrei átt að fara fyrir dóm.
Samkvæmt Aftenposten eru ágreiningsmálin mörg, til að mynda að móðirin hafi vitað það árum saman að dóttir hennar glímdi við átröskun en að sögn Sandland snerist líf móðurinnar um að aðstoða dóttur sína við að ná bata. Frá því hún var greind með átröskun árið 2012 hafi hún haft samband við 13 til 14 heilbrigðisstofnanir og rætt við um 200 ráðgjafa á þessu sviði. „Þessu lauk á eins skelfilegan hátt og hugsast getur,“ segir Sandland.
Camilla Lem Heggelund er ákærð fyrir vítaverða vanrækslu og ofbeldi gagnvart dóttur sinni með því að láta hjá líða að veita henni nauðsynlega læknisaðstoð og meðferð. Þetta hafi leitt til þess að stúlkan lést úr vannæringu og jafnvel ofkælingu.
Meðal þeirra sem bera vitni við réttarhöldin er faðir stúlkunnar sem er búsettur í Bandaríkjunum. Lögmaður hans vill ekki tjá sig um málið fyrir fram annað en að um fjölskylduharmleik sé að ræða.