Sigur á Ríkis íslams í sýrlensku borginni Raqqa var sögulegur. Þetta sagði talsmaður Sýrlensku lýðræðissveitarinnar (SFD) sem njóta stuðnings Bandaríkjahers, við opinbera athöfn í borginni í dag.
Talal Sello, talsmaður SFD sagði að þegar hersveitin náði Raqqa á sitt vald hafi verið um að ræða „sögulegan sigur“ sem væri tileinkaður „öllu mannkyni“.
„Við í Sýrlensku lýðræðissveitinni tilkynnum að við munum afhenda öryggissveitum borgina Raqqa nærliggjandi sveitir,“ bætti Sello við.
Ríki íslams gerði Raqqa að höfuðstöðvum Kalífadæmis síns snemma árs 2014 og tóku þá upp öfgakennda túlkun á kenningum íslams.
Liðsmenn samtakanna stóðu þar fyrir krossfestingum, aftökum og ýmsum pyntingum til að vekja ótta með þeim íbúum borgarinnar sem voru andsnúnir samtökunum.