Eldur í neðanjarðarspennistöð Georgia Power, sem sér Hartsfield-Jackson-flugvellinum í Atlanta fyrir rafmagni, gerði það að verkum að rafmagnslaust varð á flugvellinum í rúmar 11 klukkustundir í gær.
Frétt mbl.is: Rafmagnslaust á fjölfarnasta flugvellinum
Frétt mbl.is: Rafmagn komið á
Mikil röskun varð á öllu flugi til og frá alþjóðaflugvellinum í Atlanta eftir að rafmagn fór af. Aflýsa þurfti hundruðum flugferða og enn er unnið að því að koma flugsamgöngum í samt horf. Um 250 þúsund farþegar fara um flugvöllinn á hverjum degi og eru flugferðirnar um 2.500 talsins.
Í tilkynningu frá Georgia Power, sem BBC greinir frá, kemur fram að bilun í sjálfvirku stjórnborði spennustöðvarinnar hafi að öllum líkindum orsakað eldinn. Kaplar og annar búnaður varð fyrir skemmdum. Þá varð öryggisbúnaður, sem átti að tryggja flugstöðinni varafl í rafmagnsleysi, einnig fyrir skemmdum.
Þeir flugfarþegar sem áttu bókað flug í gær en komust ekki leiðar sinnar hafa þurft að bíða í röð í dag til að fá nýja flugmiða. Töluverðar tafir eru því ennþá á flugvellinum.