Maðurinn sem er grunaður um að hafa staðið á bak við pakkasprengjuárásir í Texas í Bandaríkjunum hét Mark Anthony Conditt og var 23 ára, að sögn bandarískra fjölmiðla.
Hann sprengdi sjálfan sig í loft upp eftir að lögreglumenn umkringdu bíl hans í borginni Round Rock í Texas.
Að sögn yfirvalda bjó maðurinn um 30 kílómetrum frá Austin, höfuðborg Texas, samkvæmt frétt BBC.
Yfirvöld hafa enn ekki greint opinberlega frá nafni mannsins.
Fjórar sprengjuárásir hafa verið gerðar í Austin síðustu daga. Sprengjurnar voru sendar í pósti og sprungu er sendingarnar voru opnaðar. Óttast er að fleiri sprengjum hafi verið komið fyrir í borginni.
Tveir hafa farist og sex særst í sprengingunum.
BREAKING: Austin serial bombing suspect identified as 24-year-old Mark Anthony Conditt, according to two law enforcement sources familiar with the investigation pic.twitter.com/p7s2SR2La2
— MSNBC (@MSNBC) March 21, 2018
Greg Abbot, ríkisstjóri Texas, sagði við sjónvarpsstöðina Fox News að Conditt hafi búið með tveimur meðleigjendum sínum í Flugerville, um 30 kílómetrum suður af Austin.
Mennirnir sem bjuggu með honum hafa verið yfirheyrðir af lögreglunni en þeir eru ekki grunaðir um aðild að pakkasprengingunum.