Andrea Leadsom, ráðherra og leiðtogi þingflokks Íhaldsflokksins, hefur sagt af sér embætti. Segist hún ekki lengur hafa trú á áætlunum ríkisstjórnarinnar um útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Fram kemur í færslu Leadsom á Twitter að ákvörðunin hafi verið henni þungbær.
It is with great regret and a heavy heart that I have decided to resign from the Government. pic.twitter.com/f2SOXkaqmH
— Andrea Leadsom MP (@andrealeadsom) May 22, 2019
Leadsom er 36. ráðherrann sem segir af sér embætti í ríkisstjórn Theresu May og 21. sem segir af sér vegna Brexit.
Leadsom sagði á Twitter-síðunni að ákvörðunin væri henni þungbær. Í bréfi sem May skrifar Leadsom segir hún að það sé leitt að missa jafn ástríðufulla, öfluga og einlæga stjórnmálakonu og Leadsom.
Leadsom bauð sig fram til formennsku í Íhaldsflokknum, fyrir tíð May, en dró framboð sitt til baka og greiddi þannig götu May á leið hennar í embætti formanns og síðar forsætisráðherra.
Breska ríkisútvarpið hefur eftir nokkrum ráðherrum ríkisstjórnarinnar að dagar May sem forsætisráðherra séu taldir. May hét því í mars að hún myndi hætta sem leiðtogi Íhaldsflokksins eftir að Bretland væri ekki lengur í Evrópusambandinu. Í síðustu viku hafnaði hún kröfu frá þingmönnum flokksins um að hún tilgreindi nákvæmlega hvenær hún myndi hætta sem leiðtogi.