Milljónir hafa þurft að flýja heimili sín á Indlandi, í Nepal, Bangladess og Pakistan vegna flóða og aurskriða vegna Monsúnrigninganna sem nú ganga yfir suðurhluta Asíu.
Hátt í 200 hafa farist í hamförunum og er óttast að enn tala látinna eigi eftir að hækka enn frekar þegar björgunaraðilar komast loks að hinum ýmsu svæðum sem hafa orðið illa úti.
„Flóðin hafa breytt heimilum okkar í helvíti,“ segir Rupesh Ja, íbúi í Bihar í austurhluta Indlands, þar sem íbúar hafa þurft að vaða vatn og aur upp að mjöðmum undanfarna daga.
Monsúnrigningarnar standa yfir frá júní og fram í september og skilja flóð og aurskriður þeirra vegna eftir sig slóð eyðileggingar ár hvert. Um 1.200 létust í rigningunum í fyrra, en þá voru þær hinar verstu í Kerala á Indlandi í 100 ár.