Of snemmt er að segja til um hvort ofsaakstur karlmanns á stolnum sjúkrabíl um götur Óslóarborgar í morgun verði skilgreindur sem hryðjuverk. Þetta segir talsmaður norsku lögreglunnar í samtali við NRK, norska ríkisútvarpið. Allir lögreglumenn í Óslóarumdæminu ganga nú um vopnaðir.
Maðurinn, sem er rúmlega þrítugur, hefur áður komist í kast við lögin, samkvæmt NRK.
Lögreglu tókst að stöðva hann með því að skjóta á dekk bílsins og í kjölfarið skiptust maðurinn og lögregla á skotum, uns tókst að yfirbuga hann. Samkvæmt NRK varð enginn fyrir skotum lögreglu.
Maðurinn ók á nokkra vegfarendur, þeirra á meðal sjö mánaða gamla tvíbura, sem voru í barnavagni, og móður þeirra sem ók vagninum. Í frétt NRK segir að börnin séu lítilsháttar slösuð eftir ákeyrsluna. Lögreglan í Ósló lýsir eftir konu í tengslum við málið og samkvæmt NRK hefur hún einnig komist áður í kast við lögin,
Twitter-færsla Óslóarlögreglunnar:
Politiet er tidlig i etterforskningen og vi jobber blant annet med avhør av vitner, sikring av videoer og andre tekniske spor.
— OPS Politiet Oslo (@oslopolitiops) October 22, 2019
Vi har foreløpig ingen opplysninger om at hendelsen er terrorrelatert, men vi etterforsker bredt og med stor styrke.