Átök brutust út fyrir utan forsetahöllina í La Paz í Bólivíu í dag milli stuðningsmanna Evo Morales, fyrrverandi forseta landsins, og öryggissveita bólivíska hersins á fyrsta degi Jeanine Áñez í embætti forseta landsins.
Öldungadeildarþingmaðurinn Jeanine Áñez lýsti sjálfa sig forseta Bólivíu til bráðabirgða í gær eftir að Evo Morales sagði af sér embætti. Hún er þingmaður stjórnarandstöðunnar í Bólivíu.
Átökin, sem eru sögð hafa verið ofbeldisfull, brutust út á meðan Áñez var að skipa í nýja yfirstjórn hersins að því er fram kemur á AFP-fréttaveitunni. Hún hefur lýst því yfir að boðað verði til kosninga í landinu fljótlega.
Morales hefur fordæmt aðgerðir Áñez og segir hana vera eina af þeim sem stóðu fyrir valdaráni í Bólivíu. Morales flúði til Mexíkó fyrr í vikunni þar sem hann hefur sótt um pólitískt hæli.