Heilbrigðisráðuneytið í Japan tilkynnti í dag að annað tilfelli kórónaveirunnar sem breiðst hefur út frá borginni Wuhan í Kína hefði greinst þar í landi, í manni sem hafði einmitt nýlega verið staddur í Wuhan.
Samkvæmt yfirlýsingu ráðuneytisins kom maðurinn til Japans 19. janúar og hafði þá verið orðinn hitalaus eftir að hafa verið veikur í nokkra daga þar á undan. Hitinn blossaði þó aftur upp í honum í gær og þá leitaði hann sér aðstoðar á spítala í Tókýó, þar sem hann dvelur nú.
Sjúkdómurinn er rakinn til matarmarkaðar í Wuhan, en hann hefur greinst í ferðamönnum sem þaðan hafa komið til fjölda Asíulanda. Þá hafa tvö tilvik komið upp í Bandaríkjunum, auk þess sem grunur leikur á að sex veikir einstaklingar í Skotlandi og Írlandi séu veikir af kórónaveirunni nýju, sem hefur heitið 2019-nCoV.
Algert samgöngubann er í gildi í Wuhan og kemst enginn til eða frá borginni, auk þess sem skorður hafa verið settar á samgöngur í að minnsta kosti fimm öðrum kínverskum borgum. Samkvæmt frétt AFP eru í reynd um 20 milljónir manna í sóttkví.
Kórónaveiran á líklega rætur að rekja til leðurblaka eða snáka, en sjúkdómurinn er nú farinn að smitast manna á milli. Ekki er þó talið að hann hafi smitast á milli manna utan Kína enn sem komið er.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO hefur sagt að enn sé ekki tilefni til að lýsa yfir alþjóðlegu neyðarástandi vegna sjúkdómsins, en fylgist grannt með gangi mála.
Sóttvarnarlæknir telur ekki ástæðu til að hvetja til ferðabanns til Kína vegna hinnar nýju kórónaveiru. Ekki er heldur ástæða til að skima farþega á flugvöllum hér á landi.