Karlmaður sem braust inn á lokað svæði fyrir utan Windsor-kastala í London í Bretlandi á jóladag árið 2021 játaði sök fyrir dómstóli í dag, en hann var ákærður fyrir landráð. Maðurinn var vopnaður lásboga og sagðist ætla að myrða Elísabetu II. Bretadrottningu.
Hann er fyrsti maðurinn í Bretlandi sem er sakfelldur fyrir landráð síðan árið 1981 en hann hefur einnig játað sekt sína fyrir líflátshótanir og fyrir vopnalagabrot. BBC segir frá.
Maðurinn heitir Jaswant Singh Chail og er frá þorpinu Norður Baddesley nálægt Southampton í Englandi.
Hann var handtekinn á jóladagsmorgun árið 2021 af lögreglumanni í gæslu drottningar þegar drottningin var í Windsor-kastala vegna kórónuveirufaraldursins.
Chail hafði þegar verið í tvær klukkustundir vopnaður lásboga á lokuðu svæði fyrir utan kastalann þegar lögreglumaðurinn kom auga á Chail og spurði hvort hann gæti aðstoðað hann.
„Ég er hér til þess að drepa drottninguna,“ svaraði Chail þá og handtók lögreglumaðurinn hann þá.