Líkbíl með líkum áströlsku bræðranna Jake og Callum Robinson var keyrt í átt að landamærum Mexíkó að Bandaríkjunum í gær, fimmtudag. Bræðurnir voru myrtir ásamt vini þeirra eru þeir voru í fríi í landinu í lok apríl.
Bílstjóri bílsins sagði við blaðamenn að hann myndi keyra lík bræðranna að landamærunum, er hann lagði af stað frá líkhúsinu í borginni Tijuana.
Lík hins bandaríska Jack Carter Rhoad, sem var einnig myrtur, er á öðru líkhúsi í borginni.
Það mun taka nokkra klukkutíma að fara með líkin yfir landamærin svo að óljóst er hvenær þau koma til San Diego-borgar þar sem Debra og Martin Robinson munu taka við líkum sona sinna.
Vinirnir þrír höfðu tjaldað á afskekktu svæði í Baja Kalifornía-fylki þegar þeir voru myrtir. Lögreglan telur að þeir hafi verið drepnir vegna tilraunar til að stela pallbíl þeirra sem fannst skammt frá og búið var að kveikja í.
Líkin þrjú fundust í vatni með skotsár á höfðum þeirra.
Á miðvikudag var maður að nafni Jesus Gerardo ákærður fyrir morðin. Tveir aðrir eru grunaðir um að hafa átt aðild að morðunum. Þeir eru í haldi lögreglu fyrir fíkniefnavörslu.