Hagnaður FL Group 5.829 milljónir króna

Hagnaður FL Group samstæðunnar fyrir skatta á fyrsta ársfjórðungi 2006 var 6.644 milljónir króna samanborið við 28 milljóna króna hagnað árið áður. Að teknu tilliti til skatta var hagnaður tímabilsins 5.839 milljónir króna, samanborið við 25 milljónir króna árið áður. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu nam 33,8%. Afkoma af fjárfestingastarfsemi nam 9.973 milljónum króna fyrir skatta, en á sama tímabili nam árstíðarbundið tap rekstrarfélaga að frádregnum samrunakostnaði hjá Sterling 2.530 milljónum króna. Að meðtöldum samrunakostnaði var tapið 3.329 milljónum króna.

Tap Icelandair 677 milljónir króna

Í tilkynningu kemur fram að tap Icelandair nam 677 milljónum króna. Hagnaður Icelandair Group fyrir afskriftir, vexti og skatta , EBITDA, batnaði um 644 milljónir króna borið saman við óendurskoðaðar pro forma tölur síðasta árs en afkoma fyrir afskriftir, vexti og skatta er neikvæð um 265 milljónir króna. Tapið má rekja til árstíðabundinnar sveiflu, að því er segir í fréttatilkynningu.

Tap Sterling 2,6 milljarðar króna

Sterling fyrir afskriftir, vexti og skatta var yfir væntingum stjórnenda eða neikvæð um 1,6 milljarða króna án samrunakostnaðar, sem einnig má rekja má til árstíðabundinnar sveiflu. Að teknu tilliti til samrunakostnaðar var tap fyrir afskriftir, vexti og skatta 2,4 milljarðar króna. Tap Sterling fyrir skatta var yfir væntingum stjórnenda en það nam 1.8 milljörðum króna. Að teknu tilliti til samrunakostnaðar nam tap félagsins 2,6 milljörðum króna, samkvæmt tilkynningu.

Gjaldeyrisjöfnuður FL Group jákvæður um 93 milljarða

Heildareignir FL Group í lok ársfjórðungsins voru 188,1 milljarðar króna, hafa aukist um 55,5 milljarða króna frá ársbyrjun. Gjaldeyrisjöfnuður félagsins var jákvæður í erlendum myntum um 93 milljarða króna í lok ársfjórðungsins sem skilaði félaginu verulegum gengishagnaði. Eigið fé í lok ársfjórðungsins var 77,4 miljarðar króna og arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 33,8%. Eiginfjárhlutfall í lok ársfjórðungsins var 45% að teknu tilliti til fjármögnunar á fyrirframgreiðslum vegna kaupa á 15 Boeing 737 800 flugvélum.

Tilkynning FL Group

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK