Bjóða betur en Philip Green

Baugur
Baugur

Stór bandarískur fjárfestingasjóður hefur lýst áhuga á að kaupa skuldir Baugs við Kaupþing. Fulltrúar fjárfestingasjóðsins eru væntanlegir til landsins í dag, þriðjudag, til fundar við skilanefnd bankans, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.

Breski kaupsýslumaðurinn Philip Green hefur fundað með skilanefndum Kaupþings og Landsbankans. Hann mun hafa boðist til að kaupa skuldir Baugs með 95% afslætti, samkvæmt heimildum. Allt aðrar verðhugmyndir munu hafa verið nefndar af hálfu bandaríska fjárfestingasjóðsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert