[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Frá Þeistarreykjum

Frá Þeistarreykjum mbl.is/Birkir Fanndal Haraldsson

Innlent | Morgunblaðið | 16.9.2009 | 05:52

Stærsti álframleiðandi Kína spáir í Þeistareyki

Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is

Mikill áhugi er nú á orkufyrirtækinu Þeistareykjum ehf. Samkvæmt traustum upplýsingum hafa fulltrúar kínverskra stjórnvalda lýst í erindi til stjórnar fyrirtækisins áhuga á mögulegum kaupum á 32% hlut í Þeistareykjum ehf. Talið er fullvíst að erindið sé lagt fram fyrir hönd fyrirtækisins Chinalco, stærsta álframleiðanda Kína. Hafa þeir óskað eftir frekari upplýsingum og fékkst staðfest í kínverska sendiráðinu í gær að kínversk sendinefnd hefði boðað komu sína til Húsavíkur um eða upp úr næstu helgi vegna málsins.

Fleiri sýna mögulegri orkuvinnslu á Þeistareykjum áhuga. Fram hefur komið að bæði Alcoa Fjarðaál og HS orka hafi haft til skoðunar möguleg kaup á hlutum í Þeistareykjum.

 

Lífeyrissjóðir taki þátt?

Viljayfirlýsing Alcoa, ríkisstjórnarinnar og Norðurþings rennur út 1. október. Mikil óvissa er um framhaldið en Alcoa leitar enn leiða til að nýta jarðvarmaorkuna á Þeistareykjum. Þá hefur skv. heimildum Morgunblaðsins verið rætt við forsvarsmenn lífeyrissjóða um mögulega þátttöku þeirra í fjármögnun virkjunarkosta á Þeistareykjasvæðinu. Það mál er þó enn á byrjunarreit en lífeyrissjóðirnir ætla að skoða verkefnið.

Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti í gær formlega að endurnýja viljayfirlýsinguna gagnvart Alcoa með átta atkvæðum gegn einu.

Norðurorka, Landsvirkjun og Orkuveita Húsavíkur (OH) eiga um 32% hlut hver í Þeistareykjum en Norðurorka hefur lýst vilja sínum til að selja hlut sinn. Skv. heimildum hefur OH fullan hug á að nýta forkaupsrétt sinn.

Forystumenn ríkisstjórnarinnar sögðu í gær samstöðu um að fyrsti kostur við orkuframkvæmdir væri bygging Búðarhálsvirkjunar. En einnig væri litið til Þeistareykja og Bjarnarflags. „Ég tel mjög mikilvægt að koma af stað framkvæmdum á borð við Búðarhálsvirkjun og að við getum komið málum þannig fyrir að menn geti líka haldið áfram fyrir norðan,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra.

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Tengdar fréttir - Alcoa kannar hagkvæmni álvers við Bakka

Innlent | mbl.is | 22.10.2009 | 14:56

Sammála um nýtingu jarðvarma í Þingeyjarsýslum

Innlent | Morgunblaðið | 05.09.2009 | 18:23

Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda

Innlent | mbl.is | 07.08.2009 | 14:58

Mikilvægt að vanda tímasetningu stóriðjuframkvæmda

Innlent | Morgunblaðið | 01.08.2009 | 13:30

Alþekkt að orkuverð hér sé lágt

Innlent | Morgunblaðið | 19.07.2009 | 10:30

Fréttaskýring: Þeistareykir þrá kaupanda að orkunni

Innlent | mbl.is | 16.07.2009 | 09:49

Leita umsagna um rannsóknarboranir í Gjástykki

Innlent | mbl.is | 13.03.2009 | 09:54

Karl V. til liðs við Frjálslynda

Innlent | Morgunblaðið | 04.02.2009 | 05:50

Álversáform enn í gildi

Erlent | AP | 04.06.2007 | 12:08

Pútín segir framsalskröfu Breta heimskulega

Innlent | mbl.is | 05.09.2006 | 10:34

Jarðhitarannsóknir á Norðausturlandi

Fleiri tengdar fréttir

Leita í fréttum mbl.is

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag