Búið er að opna Hellisheið og þá verða Þrengslin væntanlega opnuð í kvöld. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar.
Unnið er að því að opna Mosfellsheiði en Lyngdalsheiði verður lokuð til morguns.
Vegurinn um Súðavíkurhlíð er lokaður vegna snjóflóðahættu og hann opnast ekki í dag.