„Þetta mál er búið að taka ansi langan tíma,“ segir Ólafur Adolfsson, lyfjasali og eigandi Apóteks Vesturlands. Hæstiréttur hefur dæmt Lyf og heilsu til að greiða Apóteki Vesturlands fjórar og hálfa milljón í bætur vegna samkeppnisbrota.
Ólafur segist vera glaður að málinu sé lokið og að hann sé að loka ellefu ára kafla en hann gerði fyrstu athugasemdina sumarið 2007.
Skaðabótamálið má rekja til úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá árinu 2010 þar sem staðfest var að Lyf og heilsa hefði á tilteknu tímabili misnotað markaðsráðandi stöðu sína í aðgerðum sem beindust gegn Apóteki Vesturlands. Meðal annars með því að hindra innkomu fyrirtækisins á lyfjasölumarkaðinn á Akranesi með útgáfu vildarkorta og baráttuafslátta. Hæstiréttur staðfesti úrskurðinn árið 2012.
Apótek Vesturlands höfðaði í kjölfarið skaðabótamál og krafðist rúmra 18 milljóna króna í bætur vegna tjónsins sem það taldi sig hafa orðið fyrir vegna aðgerðanna. Í málinu lá fyrir undirmatsgerð með þeirri niðurstöðu að Apótek Vesturlands hefði orðið fyrir tjóni sem nam 18.506.078 kr, en í yfirmatsgerð var ályktað að fyrirtækið hefði ekki orðið fyrir beinu tapi vegna hinna ólögmætu samkeppnishindrana. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Lyf og heilsu af skaðabótakröfunni í janúar á síðasta ári.
Ólafur heldur því fram að upprunalega kröfugerð Apóteks Vesturlands, um 18 milljónir króna í bætur, hafi verið réttmæt. „Það er hins vegar búið að fella dóma í málinu og niðurstaðan er þessi. Það segir að ég hafi ekki náð að sannfæra dómara um að tjónið væri eins og við upplifðum það,“ segir Ólafur og bætir því við að hann sé ánægður með að Hæstiréttur hafi snúið sýknu héraðsdóms við.
Spurður hvort þetta sé dæmi um það þegar stórt og kraftmikið fyrirtæki reynir að traðka á minna fyrirtæki segir Ólafur Lyf og heilsa sé nú ekki að leika þennan leik í fyrsta sinn og málið snúist nú frekar um skort á heilbrigðu viðskiptasiðferði fyrirsvarsmanna fyrirtækja fremur en stærð þeirra.
„Það er umhugsunarefni fyrir mig og aðra sem kunna að lenda í sambærilegum aðstæðum hvernig hægt er að komast að þeirri niðurstöðu, eftir að sýnt hefur verið fram á alvarleg og gróf samkeppnislagabrot sem staðfest hafa verið á öllum dómstigum og álögðum sektum fyrir 100 milljónir, að það hafi enginn skaði orðið hjá þeim aðila sem fyrir brotinu verður. Það hvetur mann allavega ekki til að fara fram á bætur þó tjónið sé að mínu mati augljóst”.