Lyf og heilsa greiðir 100 milljónir

Lyf og heilsa misnotaði markaðsráðandi stöðu sína þegar fyrirtækið greip til aðgerða sem beindust gegn Apóteki Vesturlands. Þetta var niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í dag og þar var úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála staðfestur.

 Að mati héraðsdóms voru brotin „alvarleg, miðuðu að því að hindra innkomu nýrrar lyfjaverslunar á markað, sem stefndi sat áður einn að, og síðan að því að veikja hinn nýja aðila og raska samkeppni“.

Héraðsdómur hafnaði einnig kröfu um lækkun sekta.

Forsaga málsins er sú að Samkeppniseftirlitið hóf rannsókn á ætluðum brotum Lyfja og heilsu með húsleit í september 2007. Rannsóknin hófst í kjölfar ábendinga um að fyrirtækið hefði gripið til aðgerða til að hindra að Apótek Vesturlands, sem þá var nýstofnað, næði að hasla sér völl á Akranesi.

Með ákvörðun nr. 4/2010 komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Lyf og heilsa hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína með skipulagðri atlögu gegn Apóteki Vesturlands, sem beinlínis hafði það að markmiði að raska samkeppni.

Aðgerðir Lyfja og heilsu munu annars vegar hafa falist í stofnun svonefnds vildarklúbbs sem var ætlað að tryggja að mikilvægir viðskiptavinir myndu ekki hefja viðskipti við Apótek Vesturlands.

Hins vegar fólust aðgerðirnar í því sem Lyf og heilsa nefndi „baráttuafslætti“. Um var að ræða verulega afslætti á mikilvægum lyfjum, sem einungis voru í boði á Akranesi.

Var þessum aðgerðum ætlað að koma Apóteki Vesturlands út af markaðnum og senda skýr skilaboð til annarra aðila um að ekki borgi sig að reyna að keppa við Lyf og heilsu. Voru brotin talin alvarleg og var Lyfjum og heilsu gert að greiða 130.000.000 kr. stjórnvaldssekt.

Lyf og heilsa skaut ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og krafðist þess að hún yrði felld niður eða sektir lækkaðar verulega.

Áfrýjunarnefnd staðfesti hins vegar þá niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins að fyrirtækið hefði verið í markaðsráðandi stöðu og að aðgerðir þess hefðu falið í sér alvarleg brot á samkeppnislögum.

Áfrýjunarnefndin taldi hæfilegar sektir kr. 100.000.000 og var sá úrskurður staðfestur í héraðsdómi.

Frétt á vefsíðu Samkeppnisstofnunar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert