„Það var eiginlega bara svolítið hjákátlegt,“ segir Bára Halldórsdóttir um bréfið sem henni barst í gær þar sem hún er boðuð til þinghalds í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna beiðni frá lögmanni fjögurra þingmanna Miðflokksins vegna mögulegs einkamáls.
Bára var stödd á Klaustri bar 20. nóvember síðastliðinn þegar hún varð nokkurra þingmanna vör sem fóru illum orðum um konur, fatlaða og samkynhneigða. Hún tók samtöl þingmannanna upp og sendi fjölmiðlum nokkru síðar.
„Mér fannst þetta eiginlega bara svolítið fyndið, þetta bréf inniheldur einhverjar flækjur sem ég skil ekki,“ segir Bára, sem var á leið til fundar við lögfræðing til að fá nánari útskýringu á boðuninni þegar blaðamaður mbl.is náði tali af henni.
Bára er boðuð sem aðili máls til þinghaldsins en ekki til að skýrslutöku eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum. RÚV hefur eftir Símoni Sighvatssyni, dómsstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur, að Bára sé boðuð til að gera henni ljóst að hugsanlega verði höfðað mál gegn henni og hún gæti því þurft að bregðast við því.
Bára er ranglega feðruð í bréfinu sem henni barst í gær, sögð Guðmundsdóttir en ekki Halldórsdóttir. Henni var síðar fært bréf með réttu nafni. Vísir greinir frá því að mistökin megi rekja til beiðni lögmanns þingmannanna.
Bára segir að þessi mistök séu skýrt dæmi um hvernig litið sé á hennar aðkomu í Klaustursmálinu. „Ég held að það ýti undir það hversu miklu máli ég skipti í þessu, ég greinilega skipti ekki það miklu máli að þau geta ekki einu sinni munað nafnið mitt rétt.“
Bára vildi að öðru leyti ekki tjá sig um næstu skref fyrr en eftir að hún er búin að ræða við lögfræðing, en hún sagði í samtali við mbl.is í fyrradag að lögfræðingar hafa haft samband við hana að fyrra bragði og boðið fram aðstoð sína. „Ég mæti ef að ég á að mæta. Það kemur í ljós þegar ég er búin að tala við einhverja sem hafa meira vit á þessu en ég.“
Þrátt fyrir mögulega málsókn segir Bára að hún finni enn fyrst og fremst fyrir stuðningi. Jón Gnarr, grínisti og fyrrverandi borgarstjóri, lýsti yfir stuðningi við Báru á Twitter í gær þar sem hann segist vera tilbúinn til að efna til söfnunar fyrir Báru ef „svo ólíklega vildi til“ að hún yrði dæmd til að „borga eitthvað“.
„Þetta er voðalega gott að vita að fólk sem er réttsýnt standi með manni,“ segir Bára. Þá hefur einnig verið stofnaður hópur henni til stuðnings á Facebook: Takk Bára og eru liðsmenn hans yfir 8.600. Hópurinn stendur fyrir samstöðuviðburði fyrir Báru á mánudag fyrir utan Héraðsdóm Reykjavíkur þegar Bára á að mæta til þinghalds. „Það er ótrúlega gott að vita af fólki þarna úti sem að styður mann,“ segir Bára.