Þrátt fyrir gular og appelsínugular viðvaranir í flestum landshlutum í dag var lítið um útköll hjá slysavarnafélaginu Landsbjörg um helgina.
Veðurviðvaranir munu gilda lengst til miðnættis í kvöld á Austurlandi og Norðurlandi vestra.
Vont veður er áfram í kortunum næstu daga og hefur verið gefin út gul viðvörun fyrir allt landið á þriðjudaginn frá því klukkan 7 um morguninn til 18 um kvöldið.