Ríkið samþykkir kaup á 510 eignum

Þórkatla hefur samþykkt kaup á 510 eignum í Grindavík. Örn …
Þórkatla hefur samþykkt kaup á 510 eignum í Grindavík. Örn Viðar Skúlason er framkvæmdastjóri Þórkötlu.

Stjórn Þórkötlu hefur samþykkt kaup á 510 fasteignum í Grindavík að andvirði um 40 milljarða króna. Þar með er búið að samþykkja 95% þeirra umsókna sem bárust í mars og kalla ekki á sérstaka meðferð af hálfu félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þórkötlu.

Þar segir að samningar við lánveitendur hafi ekki klárast fyrr en þann 21. apríl og að það hafi verið forsenda þess að hægt væri að hefja uppkaup á húsnæði, 

„Í þessari viku hefur félagið gengið frá tæplega 300 kaupsamningum og sent til seljenda. Andvirði þessara samninga er um 26 milljarðar króna. Í næstu viku verður
byrjað á umsóknum sem bárust félaginu á fyrri helmingi aprílmánaðar sem eru samtals 121,“ segir í tilkynningu.

Fleiri fermetrar og hærra brunabótamat kalli á úttekt

Í tilkynningu segir að nokkur hluti umsókna hefur kallað á sérstaka skoðun af hálfu félagsins. Um er að ræða tilfelli þar sem brunabótamat hefur hækkað umtalsvert eða skráðum fermetrum fjölgað frá 10. nóvember síðastliðnum. Þá fór fram sérstök skoðun á umsóknum þar sem fyrir lágu nýlegir kaupsamningar þar sem kaupverð er umtalsvert lægra en brunabótamat eignarinnar. Félagið mun einnig gera sérstaka úttekt á þeim húsum þar sem ekki liggur fyrir lokaúttekt byggingarfulltrúa.

Margar fyrirspurnir frá Grindvíkingum 

Eins segir að félaginu berist mikið af fyrirspurnum og erindum frá Grindvíkingum og leitast er við að svara þessum erindum en vegna mikils fjölda getur verið nokkur töf á svörum.

Félagið beinir því til Grindvíkinga og annarra að fylgjast með fréttum og
gagnlegum upplýsingum á vef félagsins á island.is.

Haft er eftir Erni Viðari Skúlasyni í tilkynningu að skilningur sé til staðar gagnvart þeim hópi sem enn hefur ekki fengið úrlausn sinna mála en miðað við hversu vel hefur gengið að undanförnu ríki bjartsýni á framhaldið.

„Það er okkur afar mikilvægt að Grindvíkingar fái sín mál á hreint sem fyrst og ég fullyrði að eru allir sem að verkefninu koma eru að leggja sig fram um að hraða öllu eins og hægt er,“ er haft eftir Erni í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert