Hermann Nökkvi Gunnarsson
Forsetaframbjóðandinn Halla Hrund Logadóttir mætir í félagsheimilið Valaskjálf á Egilsstöðum í kvöld. Verður þar haldinn opinn borgarafundur fyrir bæjarbúa og nærsveitunga sem Morgunblaðið og mbl.is efna til vegna forsetakosninganna.
Fundurinn verður klukkan 19.30 í kvöld og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson munu ræða við Höllu Hrund um framboð hennar til embættis forseta Íslands.
Halla Hrund mætti í Spursmál síðastliðinn föstudag og hefur sá þáttur vakið þjóðarathygli, meðal annars vegna ýmissa atriða sem voru dregin fram í sviðsljósið. Þá mældist hún með mesta fylgi allra frambjóðenda í glænýrri Prósent-könnun sem birt var í Morgunblaðinu og á mbl.is fyrr í morgun.
Auk umræðna með Höllu í kvöld verða sérstakir álitsgjafar fengnir á borgarafundinn til að spá í spilin.
Að þessu sinni verður hlutverk álitsgjafa í höndum Stefáns Boga Sveinssonar héraðsskjalavarðar og Hrafndísar Báru Einarsdóttur hóteleiganda. Þá gefst gestum úr sal einnig tækifæri á að beina spurningum til frambjóðandans.
Dagskrá umræðufunda Morgunblaðsins og mbl.is:
Félagsheimilið Valaskjálf á Egilsstöðum 6. maí kl. 19.30 - Halla Hrund Logadóttir
Hótel Selfoss á Selfossi 14. maí kl. 19.30 - Baldur Þórhallsson
Græni hatturinn á Akureyri 20. maí kl. 19.30 - Katrín Jakobsdóttir
Ekki missa af spennandi umræðu og frábærri stemningu í aðdraganda forsetakosninga. Allir eru hvattir til að mæta og taka upplýsta ákvörðun.