„Þegar fjórir flokkar standa saman að meirihluta getur það svo sem verið mjög flókið,“ segir Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri sveitarfélagsins Árborgar, í samtali við mbl.is.
Oddvitar Framsóknar og óháðra, Miðflokksins, Áfram Árborg og Samfylkingarinnar í Árborg hafa ákveðið að hefja viðræður um myndun nýs meirihluta í Árborg. Eftir stendur einn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, sem missti meirihluta sinn í sveitarfélaginu í kosningunum í gær. Gangi viðræðurnar upp verður myndaður eins manns meirihluti í sveitarfélaginu, fimm gegn fjórum.
Ásta missti sæti sitt í bæjarstjórn en 183 atkvæði vantaði upp á svo hún næði kjöri. Aðspurð um stöðu sína í bæjarmálunum segir Ásta að hún sé óljós eins og er. „Ef að Sjálfstæðisflokkurinn verður í meirihluta mun ég taka þátt í starfinu áfram.“
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins á lista flokksins í Árborg hafa rætt málin eftir niðurstöður kosninganna og hafa ekki lagt árar í bát. „Við erum tilbúin til viðræðna við einhverja af þessum aðilum í hinum flokkunum. En við verðum að bíða og sjá hvort að þau mynda meirihluta,“ segir Ásta.