Dalvíkingurinn frá KA til Bandaríkjanna

Sveinn Margeir Hauksson.
Sveinn Margeir Hauksson. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Dalvíkingurinn Sveinn Margeir Hauksson mun ekki klára tímabilið með KA í Bestu deildinni í knattspyrnu en hann fer í UCLA-háskólann í ágúst. 

Sveinn Margeir mun þar stunda nám samhliða því að leika með fótboltaliði skólans í Los Angeles. 

Sveinn er 22 ára miðjumaður sem gekk til liðs við KA um mitt sumar árið 2019. Þá hefur hann leikið 83 leiki í efstu deild með KA og skorað 10 mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert