Rice magnaður í sigri Arsenal (myndskeið)

Arsenal vann 3:0 sigur á Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og er nú á toppi deildarinnar.

Bukayo Saka skoraði fyrsta mark leiksins eftir vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks. Leandro Trossard skoraði annað mark liðsins sem  Decl­an Rice lagði upp og Rice skoraði svo sjálfur þriðja mark leiksins.

Mörk­in og helstu atvik leiksins má sjá í spil­ar­an­um hér að ofan en mbl.is fær­ir ykk­ur efni úr enska bolt­an­um í sam­starfi við Sím­ann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert