Það styttist í síðasta meistaramótið í Valorant fyrir heimsmeistaramótið sjálft en það fer fram í Kaupmannahöfn í Danmörku í lok næsta mánaðar.
Masters Copenhagen er síðasta tækifæri liða til þess að vinna sér inn stig svo þau geti tekið þátt í heimsmeistaramótinu. Tólf lið munu taka þátt í mótinu og hefur verið staðfest hvaða lið munu keppa.
Liðin sem taka þátt á Masters Copenhagen eru eftirfarandi:
Guild
Fnatic
FunPlus Pheonix
OpTic
XSET
Paper Rex
XERXIA
DRX
Northeption
LOUD
Leviatán
Nokkur þessara liða tóku þátt á síðasta meistaramóti, Masters Reykjavík, sem fór fram fyrr á árinu í Laugardalshöllinni.
OpTic Gaming unnu það mót með glæsibrag eftir 3:0 sigur í úrslitaleik gegn LOUD.
Vert er að nefna að FunPlus Pheonix komust ekki á Masters Reykjavík vegna ferðatakmarkana. Í stað FPX fékk Team Liquid þátttökurétt sem síðan deildi 7. og 8. sæti með Guard.
FPX fær nú annað tækifæri á Masters Copenhagen til að tryggja sér sæti á heimsmeistaramótinu en það fer fram í haust í Istanbúl.
Keppnissenan mun taka miklum breytingum eftir heimsmeistaramótið en þá munu áform Riot Games taka gildi.
Breytingarnar fela meðal annars í sér þrjár alþjóðlegar deildir auk úrvalsdeildar, meiri stuðning við lið og fleira.