Bourdais gefur formúlu-1 upp á bátinn

Bourdais fagnar sigri í ChampCar-móti með liðsstjóranum Carl Haas.
Bourdais fagnar sigri í ChampCar-móti með liðsstjóranum Carl Haas. ap

Franski ökuþórinn Sebastien Bourdais sem á dögunum vann systurkeppni formúlu-1 í Bandaríkjunum - ChampCar mótaröðina - þriðja árið í röð segist hafa gefið upp allar vonir um að eiga eftir að keppa í formúlunni.

Bourdais er samningsbundinn Newman-Haas liðinu út næsta ár en segist samt tvímælalaust munu keppa í sólarhringskappakstrinum í Le Mans einnig.

„Ég held það sé úr sögunni,“ svaraði hann hann spurningu franska íþróttablaðsins L'Equipe um tilraunir sínar til að fá vinnu í formúlu-1.

„Það er svekkjandi en fullt af færum ökuþórum hafa aldrei komist að í formúlu-1 . . . það má alltaf segja að það sé ósanngjarnt, en svona er formúla-1, hún hefur aldrei verið sanngjörn,“ segir Bourdais.

Bourdais varð heimsmeistari í Formúlu-3000 árið 2002 og hefur síðan keppt með góðum árangri í ChampCar; varð annar í keppni ökuþóra fyrsta árið en síðan meistari 2004, 2005 og 2006. Hann sinnti bílprófunum fyrir Arrow 2002 og var boðið starf keppnisþórs hjá liðinu árið 2003 en það fór á hausinn í árslok 2002 og mætti því aldrei til leiks 2003.

Hann segir við L'Equipe að mörg lið hafi viljað fá hann sem tilraunaþór en án þess að geta veitt neinar tryggingar fyrir því að það myndi síðar leiða til stöðuhækkunar í starf keppnisþórs. „Það var ætlast til þess að ég gæfi allt frá mér sem ég hafði byggt upp á fjórum árum [í Ameríku] fyrir kannski eitthvað,“ segir Bourdais.

Hann er fæddur í borginni Le Mans sem sólarhringskappaksturinn sögufrægi er kenndur við. Kveðst hann ekki hafa áhuga á að keppa í bandaríska NASCAR-kappakstrinum, en þangað er Juan Pablo Montoya farinn úr formúlu-1. Segist Bourdais frekar vilja einbeita sér að ChampCars og þolkappakstri eins og í Le Mans.

„Ég hef alltaf sagt að ég muni keppa í Le Mans öll þau ár sem mér er það kleift. Þetta er kappakstur sem ég vil vinna. Ég vona að viðræður við Peugeot leiði til einhvers en ekkert hefur verið ákveðið enn sem komið er,“ segir Bourdais sem undanfarin ár hefur ekið með Pescarolo-liðinu í Le Mans. Í ár hafði hann sem liðsfélaga m.a. Sebastien Loeb heimsmeistara í ralli.

Bourdais á leið til sigurs í ChampCar.
Bourdais á leið til sigurs í ChampCar. ap
Bourdais með Vanderbiltbikarinn sem fylgir meistaratitlinum í ChamCar, en keppnin …
Bourdais með Vanderbiltbikarinn sem fylgir meistaratitlinum í ChamCar, en keppnin hefur stundum verið nefnd CART-mótin. ap
Bourdais á leið til sigurs á Gullströndinni við Brisbane en …
Bourdais á leið til sigurs á Gullströndinni við Brisbane en nokkur mót í ChampCar eru haldin utan Bandaríkjanna. ap
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert