Bandaríska knattspyrnusambandið hefur sett Hope Solo, markvörð bandaríska kvennalandsliðsins, í sex mánaða leikbann. Ástæðan er ummæli hennar eftir leik Bandaríkjanna og Svíþjóðar í 8-liða úrslitum Ólympíuleikanna.
Svíar höfðu betur eftir vítaspyrnukeppni og eftir leikinn gagnrýndi Solo leikmenn sænska liðsins. „Við vorum að spila gegn fullt af bleyðum. Betra liðið vann ekki í dag,“ sagði Solo.
„Ummæli Hope Solo eftir leikinn gegn Svíum á Ólympíuleikunum voru óásættanleg og ekki í takt við þá hegðun sem við krefjumst af leikmönnum landsliðsins,“ sagði Sunil Gulati, forseti bandaríska knattspyrnusambandsins, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér. Solo missir af tveimur síðustu landsleikjum Bandaríkjanna á árinu en mun á meðan eingöngu leika með félagsliði sínu, Seattle Reign.
„Ólympíuleikarnir snúast um heiðarlegan leik og virðingu. Við búumst við því að allir þátttakendur okkar hafi það undantekningarlaust í huga,“ bætti hann við.
„Allan feril minn hef ég aðeins viljað það besta fyrir liðið, fyrir leikmennina og kvennaknattspyrnuna í heild sinni,“ sagði Solo meðal annars í yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni þar sem hún kveðst sorgmædd yfir ákvörðun knattspyrnusambandsins.
Solo getur snúið aftur í landsliðið í febrúar en þetta er ekki í fyrsta skipti sem hún er dæmd í leikbann. Í janúar í fyrra var hún dæmd í 30 daga leikbann en hún hnakkreifst þá við lögreglumenn eftir að eiginmaður hennar, Jerramy Stevens fyrrverandi NFL-leikmaður, var handtekinn fyrir að aka undir áhrifum vímuefna. Solo var farþegi í bifreiðinni.
Fyrri fréttir mbl.is: