Dýrt tap í toppbaráttunni

Diljá Ýr Zomers.
Diljá Ýr Zomers. Ljósmynd/Alex Nicodim

Diljá Ýr Zomers og stöllur í OH Leuven töpuðu 1:0 gegn Anderlecht í toppbaráttunni í belg­ísku A-deild­inni í dag.

Diljá var í byrjunarliði en leikurinn var markalaus þar til á 90. mínútu þegar Anderlecht komst yfir. Liðið er nú með þriggja stiga forskot á Leuven í efri hluta deildarinnar.

Enn eru þrjár umferðir eftir en þetta er dýrt tap og annað svekkjandi tap liðsins á stuttum tíma en á dögunum tapaði Leuven gegn Club Brugge í bikarúrslitum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert