Framlengdi um tvö ár hjá KA

Ott Varik í leik með KA gegn FH í vetur.
Ott Varik í leik með KA gegn FH í vetur. mbl.is/Árni Sæberg

Eistneski landsliðsmaðurinn Ott Varik hefur samið að nýju við handknattleiksdeild KA til tveggja ára.

Sagt er frá þessu á heimasíðu KA-manna.

Varik kom til KA fyrir þetta tímabil og var í stóru hlutverki sem hornamaður hægra megin en hann skoraði 115 mörk í 27 leikjum fyrir KA og var í hópi markahæstu leikmanna úrvalsdeildarinnar í vetur.

Varik er 33 ára gamall og lék áður í tvö ár með Viljandi í Eistlandi en þar á undan með SIF í Finnlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert