Anna Soffía Gronholm og Hera Björk Brynjarsdóttir töpuðu báðar í fyrstu umferð í tennis á fyrsta keppnisdegi á Smáþjóðaleikunum í San Marínó.
Anna Soffía tapaði fyrir Judit Alana Cartana frá Andorra í tveimur settum, 6:4 og 7:6. Hera Björk tapaði fyrir Fransesca Curmi frá Möltu einnig í tveimur settum, 6:0 og 6:2.