Tæplega 100 missa vinnuna hjá Glitni

Reuters

Nýr banki í eigu ríkissjóðs tók í dag við hluta af starfsemi Glitnis banka. Bankastjóri Nýja Glitnis er Birna Einarsdóttir. Áætlað er að heildarfjöldi starfsmanna hins nýja banka verði í kringum 960 manns en alls munu 97 starfsmenn bankans missa vinnuna. 

Fram kemur í tilkynningu að á stjórnarfundi FME þann 14. október hafi tekin ákvörðun um að Nýi Glitnir hf. tæki yfir hluta af eignum, réttindum og skyldum Glitnis banka hf. og heyri innlendi hluti af starfsemi bankans frá þeim tíma því undir nýtt fyrirtæki og nýja stjórn.

Um er að ræða rekstur allra útibúa á landinu, útlánastarfsemi og aðra hefðbundna bankastarfsemi. Með þessu hefur alþjóðleg starfsemi bankans verið skilin frá innlendu starfseminni.

97 missa vinnuna

Áætlað er að heildarfjöldi starfsmanna hins nýja banka verði í kringum 960 manns sem allir munu koma úr röðum núverandi starfsmanna Glitnis. Þessi breyting hefur í för með sér að um 97 starfsmenn Glitnis banka hf. á Íslandi munu missa vinnuna. Glitnir banki hefur á þessu ári hagrætt töluvert í rekstri og hefur það með annars starfsmönnum fækkað um 250 það sem af er ári, fyrir þessar aðgerðir.

Unnið hefur verið að þessum aðgerðum í nánu samstarfi við Samtök starfsfólks fjármálafyrirtækja og Starfsmannafélag Glitnis. Starfsmönnum bankans stendur til boða að leita raðgjafar hjá sálfræðingi og þeim starfsmönnum sem ekki flytjast yfir í nýja félagið verðuð boðið að sækja sér starfsráðgjöf hjá Capacent.

Útibú bankans starfa óbreytt

Framkvæmdastjórar Nýja Glitnis eru Una Steinsdóttir, viðskiptabankasviði, Stefán Sigurðsson, eignastýringu, Vilhelm Már Þorsteinsson, fyrirtækjasviði, Jóhannes Baldursson, fjárstýringu og markaðsviðskiptum, Sigrún Ragna Ólafsdóttir, fjármála- og rekstrarsviði og Rósant Már Torfason, áhættustýringu, lánaeftirliti og lögfræðisviði. Allir þessir einstaklingar hafa mikla reynslu á sínu sviði, innan sem utan bankans.

Engin breyting verður á hefðbundnum viðskiptum milli bankans og viðskiptavina hans. Útibú bankans munu starfa óbreytt og engin breyting verður á opnunartíma þeirra. Þjónusta við einstaklinga og fyrirtæki verður sú sama og notkun greiðslukorta verður með hefðbundnum hætti. Sömu inn- og útlánsreikningar verða í hinum nýja banka eins og áður var. Netbanki og hraðbankar starfa í óbreyttri mynd. Í ákvörðuninni felst m.a. að nýi bankinn yfirtekur allar innstæðuskuldbindingar í bankanum á Íslandi og sömuleiðis stærstan hluta eigna bankans sem tengjast íslenskri starfsemi s.s. lán og aðrar kröfur.

Nýr forstjóri

Birna Einarsdóttir hóf störf hjá Glitni og forverum hans árið 1987 (þá Iðnaðarbankanum) og hefur m.a. starfað sem útibússtjóri og markaðsstjóri Íslandsbanka, forvera Glitnis. Eftir nokkurt hlé réð Birna sig aftur til bankans haustið 2004 þá framkvæmdastjóri sölu og markaðsmála. Hún hefur verið framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Glitnis síðan í júní á síðasta ári. Birna starfaði um sex ára skeið að markaðsmálum hjá Royal Bank of Scotland. Hún hefur jafnframt starfað sem markaðsstjóri Íslenska útvarpsfélagsins - Stöðvar 2 og Íslenskra getrauna. Birna er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og MBA frá Háskólanum í Edinborg.


Birna Einarsdóttir.
Birna Einarsdóttir.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK